SKILMÁLAR OG PERSÓNUVERNDARSTEFNA

1. Upplýsingar um fyrirtækið

My Iceland Tours
Kennitala: 620523-0540
Heimilisfang: Álfholt 50, 220 Hafnarfjörður
Netfang: birta@bdottir.com
Sími: (354) 8637175

My Iceland Tours rekur vefsíðuna myicelandtours.is og sér um sölu og framkvæmd ferðaþjónustu samkvæmt eftirfarandi skilmálum.

2. Gildissvið

Skilmálar þessir gilda um allar bókanir og viðskipti sem fara fram í gegnum vefsíðuna myicelandtours.is, nema annað sé sérstaklega tekið fram.

Með því að bóka ferð eða nota vefsíðuna samþykkir viðskiptavinur þessa skilmála.

3. Bókun og samningsgerð

Samningur telst kominn á þegar:

  • Viðskiptavinur hefur lokið bókunarferli

  • Greiðsla hefur verið staðfest

  • Staðfestingarpóstur hefur verið sendur

My Iceland Tours áskilur sér rétt til að hafna bókun ef rangar upplýsingar hafa verið veittar eða greiðsla berst ekki.

4. Verð og greiðslur

Öll verð eru birt í ISK
Virðisaukaskattur er innifalinn í verðinu nema annað sé tekið fram.

Greiðslur fara fram í gegnum öruggt greiðslugáttarkerfi.
Full greiðsla er krafist við bókun nema annað sé tekið fram. 

5. Afbókanir og endurgreiðslur

  • Afbókun meira en 30 dögum fyrir ferð: 100% endurgreitt

Ef My Iceland Tours þarf að aflýsa ferð vegna veðurs eða óviðráðanlegra aðstæðna verður viðskiptavini boðið:

  • Ný dagsetning og reynt að koma til móts við viðskiptavin

  • Norðurljósaferðir eru ekki endurgreiddar ef ekki sjást ljós

 6. Breytingar á ferðum

My Iceland Tours áskilur sér rétt til að breyta ferðaplani vegna:

  • Veðurs

  • Öryggisástæðna

  • Óviðráðanlegra aðstæðna

Öryggi viðskiptavina er ávallt í forgangi.

7. Ábyrgð

Viðskiptavinir taka þátt í ferðum á eigin ábyrgð.
My Iceland Tours ber ekki ábyrgð á:

  • Persónulegum munum

  • Óbeinu tjóni

  • Tjóni sem rekja má til aðstæðna utan stjórnar fyrirtækisins

Viðskiptavinum er ráðlagt að hafa gilda ferðatryggingu.

 

8. Lög og lögsaga

Skilmálar þessir eru gerðir samkvæmt íslenskum lögum.
Komi upp ágreiningur skal hann rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.